|
11.03.2010 15:05:44 / jonoli
Það er kominn möguleg dagsetning á ferðinni hjá okkur. Mánudaginn 29.Mars fyrri ferð. Spilum tvo leiki á mánudeginum. Á þriðjudeginum spilum við kl. 09.00 og tökum svo fyrri ferð heim. Þetta er ekki endanlega staðfest en mikla líkur.
»
09.03.2010 10:04:40 / jonoli
Þar sem æfingin á laugardag fellur niður tökum við æfingu í staðinn á mölinni á miðvikudag kl.18.00.
»
05.03.2010 12:04:11 / jonoli
Við munum ekki fara í dag. Ég talaði við skipstjórann á Herjólfi og fékk þær upplýsingar að það væri í lagi að fara með hóp en það yrði seinkun á skipinu í kvöld til Þorlákshafnar. Sjóveður væri ekki gott en heldur ekki alslæmt. Ástæðan fyrir því að ég blæs ferðina af er vegna seinkunar. Við næðum ekki að spila í kvöld. Hvað varðar mismun valla hjá strákum og stelpum þá eru mismunandi vallaraðstæður. Vellirnir sem við áttum að spila á eru allir auðir. Það lágu líka mun fleiri ástæður að baki því að 5.fl.kvenna fór ekki. Ég vil biðja fólk hér eftir að fara ekki svona harkalega í yfirlýsingar í sambandi við ferðir og taka þar af leiðandi krakkana af taugum. Það væri betra að hringja bara í mig. Það verður því æfing í dag.
»
04.03.2010 22:11:58 / jonoli
Sæl verið þið
Gleymdi að taka það fram að strákarnir eiga að mæta tilbúnir í keppnisgallanum í Herjólf
Kv. Jón Óli
»
04.03.2010 13:53:03 / jonoli
Þeir hjá Gróttu eru tilbúnir að lána okkur grill og sögðu að við gætum líka haft afnot af örbylgjuofni. En stóra vandamálið er fararstjórn. Eins og staðan er núna þá eru aðeins tveir fararstjórar að fara með og vantar því 3 til viðbótar. Endilega skrifið hér að neðan ef þið komist.
Dóra Björk
»
01.03.2010 16:46:20 / jonoli
Við förum með seinni ferð Herjólfs á föstudag og komum á laugardag. Við byrjum á því að spila gegn Stjörnunni á föstudagskvöld. Á laugardag spilum við gegn Gróttu kl. 09.30 og síðan kl. 14.00 gegn Breiðablik. Lið-5 spilar gegn Stjörnunni 1 á föstudag og gegn Stjörnunni 2 á laugardag. Við gistum í Gróttuheimili og þurfum því að taka með okkur dýnur. Drengirnir fá að borða í hádegi á laugardag og í Herjólfi. Það er mjög mikilvægt að allir drengirnir mæti í ferðirnar í Faxaflóamótið þar sem við skráðum 5.lið. Mér skilst að það sé körfuboltamót í gangi um helgina en ekki í þeirra flokki, þannig að ég krefst þess að drengirnir láti sinn flokk ganga fyrir um helgina. Við skulum hittast annað kvöld kl. 19.30 í Týsheimilinu.
Það sem þarf að taka með: Svefnpoka,dýnu, takkaskó,IBV-búning,legghlífar,hlý föt,spil,3xnesti-eftir Herjólf-föstudagskvöld-morgunmat laugardag,drykki og ávexti.
Verð í ferðina: Herjólfur+kojur 600- Fararstjórn 600- Rúta 2.500- Gisting 1.500- Matur 1.800- Samtals= 7.000 Unglingaráð niðurgreiðir um 4.000 Iðkendur borga samtals=3.000-
Vinsamlega tilkynnið um forföll strax með SMS 8977566
»
26.02.2010 09:22:28 / jonoli
Niðurröðun á Faxaflóamótinu stendur nú yfir. Mér sýnist að við spilum 5-6.Mars. 16-17.Apríl og 7-8.Maí. Við stefnum að því að spila 3.leiki í ferð nema síðustu ferðinni þá spilum við tvo leiki og tökum fyrri ferð heim á laugardeginum.
»
19.02.2010 13:53:25 / jonoli
Drengirnir eiga að mæta í keppnisgallanum í Herjólf.
»
18.02.2010 09:39:13 / jonoli
Þá er allt komið á hreint varðandi ferðina um helgina. Við förum kl.16.00 á föstudag og komum til baka kl. 18.00 á laugardag. Við spilum gegn Val á föstudgskvöld og gegn Selfyssingum á laugardag. við gistum í Miðbergi. Þar er góð aðstaða til að grilla samlokur ef drengirnir taka slíkt með. Við þurfum ekki að taka dýnur með. Verð í ferðina: Rúta 1.000 Gisting 1.300 Herjólfur 600 Fararstj 400 Matur 1.500 Samtals 4.800 Unglingaráð niðurgreiðir um 1.300 Þannig að við þurfum að borga 3.500
Fararstjórar verða: Stefán-Siggi Más-Sighvatur-Maggi/Bergey. Forföll tilkynnast strax með SMS í síma 8977566
»
16.02.2010 14:49:55 / jonoli
Nú styttist í að nýju búningarnir komi. Það þurfa allir að fara og máta í Axel Ó.
»
15.02.2010 10:46:26 / jonoli
Við förum með seinni ferð Herjólfs á föstudag. Við byrjum á því að spila gegn Val á Valsvelli. Við gistum í Miðbergi. Á laugardag spilum við gegn Selfyssingum á Selfossi og komum svo heim með Herjólfi kl. 18.00.
Við skulum hafa fund á miðvikudag kl. 19.30 í Týsheimilinu. Okkur vantar 4-5 fararstjóra.
Það sem þarf að taka með. 3.nestispakka (eftir Herjólf, föstudagskvöld og morgunmat laugardag)--nóg af ávöxtum-- 6-8 drykki--Svefnpoka--takkaskó--IBV búning--tríkot--hlý föt.
»
12.02.2010 22:44:09 / jonoli
Afsakið hvað þetta kemur seint. Æfingin á morgunn verður á malarvellinum kl.12.15
»
11.02.2010 18:47:55 / jonoli
sæl og blessuð
Sprittkertin eru komin og verða afhent á milli 6 og 7 á morgun föstudag. Eldra árið ´nær í kertin hjá Snjólaugu á Foldahrauni 26 og yngra hjá Siggu láru á Sóleyjagötu 1. Það væri mjög gott ef fólk gæti komið með poka undir kertin með sér.
KV FORELDRARÁÐ
»
02.02.2010 19:29:13 / jonoli
Sæl og blessuð
Nú er að fara af stað sprittkertasala. Drengirnir geta valið um að
selja 5, 10, eða 15 poka af kertum. Í hverjum poka eru 100 kerti og er
verðið á pokanum 750 kr. Ekki er hægt að skila kertum.
Það er mjög mikilvægt að þið svarið póstinum í dag eða í síðasta lagi
um hádegi á morgun vegna þess að það þarf að panta kertin á morgun. Í
svarpóstinum þarf að koma fram hversu marga poka drengurinn þinn ætlar
að selja. Það er líka mjög mikilvægt að þeir sem ekki ætla að taka þátt
í þessari sölu sendi svar og láti vita af því.
Framundan er svo sala á merktum handklæðum en við látum ykkur vita betur um það seinna.
Fyrir árgang 98 sendið tölvupóst á dorabj@grv.is Fyrir árgang 99 sendið tölvupóst á siggismari@internet.is
Kv. Foreldraráð
»
26.01.2010 14:12:23 / jonoli
Þá er komin mynd á næstu ferð. Við förum með seinni ferð föstudags 19.Feb og komum til baka með laugardagsferðinni. Við spilum á föstudagskvöldinu gegn Val og á laugardeginum kl. 11.00 gegn Aftureldingu. Nánari upplýsingar koma síðar.
»
Síður: 1 2 3 ... 57
|